Furðuverkin tala
01.05.2006 23:54:08 / bjorgvin

rugl...

bjorgvin.bloggar.is
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 03:12:05 / bjorgvin

Endir...

já ég ætla fara fá mér nýja síðu... hmmm... og ekki Minn sirkus dæmi... því það hlýtur að vera álíka slæmt og Blog.central... þessi staðfestingarkóði er að gera mig geðveikann...

En netið var bilað og ekki lengur...

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 19:13:24 / bjorgvin

Fólk og vandamálin þeirra...

Ok... ég ætla gera smá dæmi...

A. Ef Þú ert að keyra fylllibyttu úr bænum á bíl vinar þín og fyllibyttan ÆLIR út um allt...
Er það þitt vandamál?

B. Ef vinkona þín stelur trefil af gaur og skilur eftir í þínum bíl og þú kemst svo að því að hann vantar þennan trefil mjög mikið... af því að það er að koma sumar...
Er það þitt vandamál?

C. Ef þú missir íbúðina og ætlar að krassa í íbúð félaga þíns í smástund en hann er ekki á staðnum heldur kemur mafían og rukkar þig fyrir skuldina hans...
Er það þitt vandamál?

nei ég er bara að pæla... ég samt geri ráð fyrir að flestum finnist það vera vandamál fyllibyttunnar í A, gaursins sem á trefilinn í B og í síðasta þá... "ööö JÁ það er þitt vandamál..." En ég veit ekki... Mér finnst það kannski ekki skipta neinu máli hvort þetta er virkilega þitt vandamál... ef maður getur lagað það þá ætti maður virkilega að reyna það...

» 10 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 23:49:22 / bjorgvin

Grrr... villidýr

Daddara...

Ég er altaf að eignast nýja vini... geðveikt gaman e-h :haha: það fylgir nýrri vinnu... nýtt fólk híhí...

Annars er það helst í fréttum að ég er kominn með alveg nóg af þessum nágrönnum... heyrist ekki múkk í manni í heilan mánuð og þá allt í einu ef það koma fleiri en þrír gestir þá bara BANK BANK... "jæja strákar... á að enda helgina með stæl???" Og maður orðinn vondi maðurinn í húsinu aftur... Ég held að besta lausninn fyrst maður er svona hataður í þessu húsi sé bara að flytja... Svo held ég að Gumma finnist ekkert gaman að búa hérna heldur... meðan Danni bjó hér þá heyrði hann nokkra nágranna alveg baktala okkur til ólífis... þannig... Mig langar í nýtt hús... e-h... sem er ekki með nágrann á neðri hæðinni... en einbýlin eru bara svo fjári dýr... alveg villidýr... eða rándýr hehe

» 11 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 13:09:34 / bjorgvin

enginn Titill

Jammsí deisí... Þetta er árstíminn sem þunglyndi fer að minnka og fólk verður hressara... og á sama tíma mjögþunglynt fólk verður ennþá þunglyndara og núna er einmitt tíminn sem hæsta sjálfsmorðstíðnin er... Æjæj... lesið minningargreinarnar... á tveim vikum eru þrjár eða fjórar greinar... allar sjálfsmorð :whut: tveir þeirra voru meira segja frekar ungir...

Sorglegt

En... Ómar og Palli fóru í söngvakeppni... á... miðvikudaginn... og þeir stóðu sig glimrandi vel... alveg hreint áttu salinn... en það var léleg dómnefnd sem ákvað að láta Sindra Eldon frekar vinna... kjánar... En mér fannst þetta Flott... næst takiði bara Breaking the waves með Dikta...

Svo í gær voru Heiða og Oddrún að keppa... og það var magnað... Oddrún sýndi alveg glæsitakta... mjög virk og dugleg á vellinum... en var samt geðveikt kvefuð þannig að... hmmm... kannski hún hefði bara átt að híla sig... En alla vega... svo tóku þær Heiðu af vellinum... og allt í einu fór allt að klikka... og staðan JAFNAÐIST svo þær settu Heiðu aftur inná... og þá lagaðist þetta aftur... og mér leið betur... þar til Heiða fór útaf AFTUR!!! og þá komust þær yfir... stelpurnar á vellinum voru alveg að kalla á hana þar sem hún var á bekknum... alveg "Heiða... við þurfum þig inná..." svo hún kom inná... en ein stelpa getur ekki unnið heilan leik... þannig að hún bara minnkaði muninn ennþá meira... en... hún er ekki súperman... þannig að við töpuðum... geðveikur leikur samt...

En já... ætlaði að segja frá bókinni sem ég keypti... sem er
Indiana Jones + Lord of the rings + Saga 103 kennslubók = Gilgameskviða

Það er sem sagt bók um konungin Gilgames sem er konungur Uruk í Mesapotamiu En hann er ekki mjög góður konungur þótt hann sé tvei þriðju konungur og einn þriðji mennskur... Svo guðirnir ákveða að búa til annann mann sem er jafnöflugur og hann... held barasta til að drepa Gilgames Konung... svona guðlegan Assasinn... sem heitir Enkidu svo kynnist Enkidu stelpu og þau gera Bonkí bonkí... og við það verður Villidýrið Enkidu aðeins meira mennskur og hittir svo Gilgames og þeir verða góðir vinir og þurfa að standast hvert skrímslið á fætur öðru sem guðirnir senda til að drepa þá... Og svo gera þeir fullt af hlutum til að vinna sig í áliti hjá guðunum líka... og þetta er bara geðveik saga um vináttu, hefnd og hörkutólaskap... Já... svo er þetta líka eitt elsta handrit alheimsins... skrifað 2500 fyrir krist held ég barasta... og er á 12 leirtöflum... sem voru þýdd og sett á prent... geðveikt Indiana Jones Fýlingur í þessu öllu saman...

» 8 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 23:09:19 / bjorgvin

Borgó

Ég sakna Borgó eins og hann var... Úff... þegar allir voru bara e-h... Daddara... geðveikt gaman... Hvernig verður þetta þegar allir klára skólan... allir fara bara að vinna og svona... Hmmm... það verður skrítið... þá svona verður fólk meira önnum kafið og sekkur sér aðeins meira í aðra hluti... þá fer bilið milli fólks að breikka og fólk talar ekki saman í langan LANGAN tíma svo í staðinn fyrir að tala um vin sinn þá talar maður um gamlan vin sinn... En já... þetta gerist ekkert alveg strax... ekki fyrr en eftir svona... alveg... ööö tvo mánuði eða e-h :P

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 17:50:36 / bjorgvin

Vantar titil...

VÁ!!! samkvæmt nýjustu rannsóknum hef ég komist að því að einn þriðji eða 35% af ykkur er yfirleitt með aðeins eitt ljós kveikt í íbúðinni sinni... ÞAÐ er virkilega að koma mér á óvart þar sem ég er með tvo lampa og eitt loftljós í mínu herbergi og altaf a.m.k eitthvað þeirra kveikt... vá... athyglisvert...

Eða... já-nei... Ekkert athyglisvert við það...

Híhíhíhí

Oooo... úff... alla vega... V for Vendetta er nokkuð góð mynd... Já... ég bara mæli með henni... ég fór á hana með Ómari og Oddrúnu og bara engum fleirum... voða skrítið að fara svona fá í bíó... langt síðan maður gerði það síðast... eða... hmmm... við fórum fjórir af deildinni um daginn að vísu... en... já soldið skrítið... því við förum altaf aldrei færri en 8 í bíó í einu... Alla vega núna langar mig að lesa teiknimyndasöguna... eða bara einhverja teiknimyndasögu... langar að vísu að sjá hvernig Sin city sagan lítur út á prenti... en... hmmm... kannski seinna bara

já... hmmm...

Vá þetta er fyndið blogg :P

» 6 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 23:56:15 / bjorgvin

Langur dagur...

Þessi dagur er búinn að vera soldið langur...

Sko... þannig er... að í dag þá var starfsdagur í vinnunni og það var haldinn ráðstefna með fimm löngum fyrirlestrum... og Guði sé lof fyrir kaffið... En... já... sem sagt í síðusta fyrirlestrinum þá fengum við blöð þar sem við áttum að skrifa e-h nokkur í hóp... og AUÐVITAÐ var ég valinn til að lesa þetta svo upp... og ég bara e-h "AAAA!!!" þar sem ég veit ekki... þetta er fullt af fólki (25) sem ég þekki ekki mikið... og vil helst ekki gera mig að miklu fífli fyrir framan... EN það var nú bara allt í lagi... þar sem á síðustu stundu kikkaði inn athyglissýkiskast sem ég hafði vonast eftir einmitt og ég leysti málið bara vel af hendi... Ekkert mál... :haha:

Svo lenti ég í umferðaröngþveiti... Rosalegt...

En komst að lokum í vinnuna þar sem fótboltastrákurinn var ekki í góðu skapi og var altaf e-h að reyna stjórna mér... eins og hann getur að vísu gert við suma... en óheppinn hann að ég hafði hlustað svo vel á fyrirlestranna að ég var bara "nei maður! ekki vera svona mikill auli..." og e-h... og það gerði hann bara meira pirraðann þar til það fór að sjóða aðeins uppúr hjá honum... og hörkutólið ég bara "TÆM ÁT farðu inn í herbergið þitt og farðu að sofa" og hann bara hlýddi og fór að lúlla... svo vakti ég hann og fór með honum í SÁÁ fótboltann... og það var geðveikt... Jahá... ég er að fá borgað fyrir að leika mér í fótbolta og fara í bíó og svona :P hehe

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 23:32:03 / bjorgvin

Tannlæknirinn

Hehehe... ég dýrka einn geðklofann minn... hann er alveg "Þú ert bara Gulur, rauður, grænn og blár og geturu svo stillt útvarpið mitt eins og ég er klæddur" Ég ætla kalla hann Sjóræningjann... svo erum við líka með Prins Myrkraflanna sem er uppáhalds geðklofinn minn, Fótboltastrákinn, Djöfladýrkandann, Álfaprinsessuna, Beauty og Stubbaætuna... Bara til að koma ykkur aðeins inn í þetta... Hehe í dag kom einn gaur af annari deild og var að segja e-h... "ég á ekkert að vera hérna... ég er bara hérna fyrir miskilning..." svo aðeins seinna skipti hann um skoðun og var alveg "HEHEHE Nei ég er SNARGEÐVEIKUR" hann er soldið skemmtilegur líka... samt ekki... eiginlega bara hundleiðinlegur... En já... Hættur að tala um geðklofana mína...

ööööö... Þá hef ég ekkert að segja næstum því...

hmmm... Skrýtið samt... Ómar hefur átt vin sem heitir Ásgeir síðan hann var lítill... Svo á þessi Ásgeir annan vin sem heitir Toni... og Toni á svo kærustu sem heitir Lilja og Lilja á svo frænda sem er ég... þannig að... Ásgeir vinur Ómars sem á vin sem er líka ég... ööö... Hann er sem sagt stundum hérna í heimsókn...öööö... Ásgeir... vinur Ómars og Tona... Ísland er nú ekkert gríðarlega stórt...

En já... til hamingju allir fylgismenn Liverpool... mjög öruggur sigur á Birmingham 7-0 hehe...

» 8 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 23:32:20 / bjorgvin

ég er svolítið Svangur...

... af því að ég er bara búinn að borða kökur í allan dag...

Nanna hélt upp á afmælið sitt áðan... og já... fullt af kökum og voða fínt... ööö já... hef ekkert meira að segja svo... ég segi þetta bara gott

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 20:26:52 / bjorgvin

Prison Break...

hmmm... ég er að sjá Prison Break alveg í nýju ljósi eftir að ég byrjaði á Klepp... hehe... svona næstum því... eða... þar er verið að smygla einhverju inn í fangelsið... og Á klepp þar er alveg verið að smygla hlutum inn... eða reyna smygla hlutum inn... og mér finnst það ekkert sniðugt... :P Svo einangrunin... við erum með afeitrun sem kallast B-gangur... það er næstum því eins... fyrir utan að þetta er ekki einangrun...

En Prison Break er að fara byrja aftur :haha: Og það er fáránlega spennandi... Hnja hnja

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 20:53:17 / bjorgvin

Risaedla

;)

Daddara hárið mitt fagra er eiginlega bara horfið... núna er það sem er eftir algjör tískuklipping... það er soldið skakkt en það líka á að vera þannig... gert viljandi sko... svo er það svona... hmmm mjög öflug pæling bakvið þetta allt... Og hárgreiðslumeistarinn heitir Oddrún :D Alveg klippti mig í tætlur... Heiða og Árni fengu að horfa á... og ég veit ekki hvernig þau brugðust við ég sá ekki neitt... en ég er viss um að þau hafa haft gaman af þessu...

En... ég er altaf að vinna með geðklofum... og það er altaf gaman... nema stundum...hefur sína góðu punkta og sína slæmu punkta... Held ég sé allur að detta inn í það...

Herdís er að halda upp á afmælið sitt... Og minns vera fara þangað en bensín mitt er algjörlega á þrotum svo ég rölti þetta bara... sem betur fer er þeta bara hérna við hliðina hnja hnja... oooookey... þetta er ekki spennandi blogg... ég er virkilega að hugsa um að hætta með þetta blogg... mér dettur aldrei neitt sniðugt í hug að setja hérna...

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 23:42:03 / bjorgvin

ég er frekar frekur

Þetta náttúrulega er ekkert hægt... Fólk er bara e-h að leika sér með lífið sitt eins og ekkert sé sjálfsagðara... það gerir sér ekkert grein fyrir hvað er auðvelt að rústa því... bara eyðileggja það með einfaldri ákvörðun... eða með kæruleysi...

Það er ekkert gagn í þeim sem getur ekki hjálpað sér sjálfur... En auðvitað geta allir klúðrað málunum og allir gera mistök... en þá er líka eiginlega ætlast til þess að fólk reddi því eða REYNI að redda því... Ok stundum er það erfitt... en það er það náttúrulega kannski af því að fólk er ekki að reyna nógu mikið...

:evil: GRRRRR :evil:

hrmpf... Áfengi er rót alls ills í heiminum... því að með áfengi fylgir ofbeldi...

» 8 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 00:07:41 / bjorgvin

skilaboð að handan

ó já...

Ég veit ekki... hvað ég get... ööö skrifað... hehe

Ekki nema þó... ODDRÚN!!! ég er til í klippingu þegar þér hentar!

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 00:37:14 / bjorgvin

Áfengi...

Mér er illa við áfengi... og ég hef séð margar góðar hliðar á áfengi þar sem fólk verður voðalega ánægt og syngur og dansar af gleði... En... ég hef líka séð fólk eyðileggja líf sitt með áfengi, ræna bílum, slasa fólk... stundum vini sína, halda framhjá kærustum og ýmislegt... og þess vegna ætla ég að rífast um áfengi... ég bara nenni því ekki núna...

kommentið 10 kosti áfengis og 10 galla áfengis... þurfið ekki að koma með öll 20 atriðinn... þess vegna bara eitt...

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 27